Færsluflokkur: Bloggar

Fyrsta kepnin mín í formblæstri !!!

helló !!! nú eru öðruvísi dagar í iðnskólanum og 3 bekkur í hárinu var að keppa í formblæstri karla og að sjálfsögðu tók ég þátt lenti reyndar ekki í verðlauna sæti en var í 4.sæti get ekki beðið eftir þeirri næstu því þá ætla ég  gjörsamlega að RÚSTA þessari keppni . Svo erum við að fara á Ladda show í kvöld með tengdó jaja bless í bili p.s. gleymdi að taka myndir en ætla að reyna að finna eithverstaðar myndir kv maja


geðveikt jamm !!!!!

hellú allir saman það var nú heldur betur tekið á því um helgina fór á jammiðCool með Anní og Hrund og nokkrum vinkonum þeirra byrjuðum á því að fara heim til Anníar að hita aðeins upp var samt ekki allveg að nenna að fara er neblega búin að vera með svona "næstum því flensu"Sick í nokkra daga en ákvað á síðustu stundu að skella mér bara með þeim og sé sko ekki eftir því eftir partíið þá var farið á hressó og tjúttað fram undir morgun það er sko orðið langt síðan ég hef skemmt mér svona vel svo var sunnudagurinn bara tekinn rólega á skaganum í þvinkunni/flensunni Sleeping sniðugt að skella þessu svona saman á einn dag í staðinn fyrir tvo en annar er það í fréttum að ég fór í mat í bylgju blæstri (nei ég var ekki að blása Bylgju ömmur) á fimmtudaginn og haldiði ekki að mín hafi nú heldur betur rúllað því upp fékk 9,5+W00t (það er sko ekki gefið 10) og geri aðrir betur er ekkert smá montinn með það klikkaði samt á því að taka mynd af herlegheitunum en allavegana takk kærlega fyrir skemtilegt jamm stúlkur kv maja

OMG

ég fór hádeiginu í dag í kringlina að kaupa hálsmen fyrir helgina en nei þakka þér kærlega fyrir það er ekki til eitt einasta hálsmen í allri kringlunni sem mig langaði í og ég var búin að labba alla fok... smáralindina og laugaveginn og finn ekki neitt sem heillar mig alveg merkilegt að maður finnur ekki neitt þegar manni vantar það Öskrandi

En allavegana þá er min búin að kaupa skó,veski og gerfi augnhár kjóllin allveg að verða tilbúin og þá vantar bara skartið vonandi finnst það í hádeiginu á morgunHlæjandi

                   Bless í bili kv Maja PæjaKoss


Geðveik helgi framundan

jaja það er nú bara búið' að vera svo brjálað að gera hjá mér undafarið að ég hef ekki nennt að blogga en ætla að koma með svona það helsta núna Svalur

 Um helgina erum við í vinnunni á leiðina á árshátíð hjá Intercoffiure stofunum hún verður haldin á Borginni og þemað er HOLLYWOODKoss svo vikan er eiginlega bara búin að fara í undirbúning fyrir hana í gær fór mín í litun og plokkun og skellti mér í leiðinni í vax og OMG hvað það var ógó vont shitt það sem maður lætur plata sig útí en bjútí is pein eins og þeir seigja  svo var ég á mánudaginn í nöglum svo Matti greyið er bara búin að vera einn heima alla vikuna með börninGlottandi

 Um síðustu helgi skeltum við okkur famelían vestur í Rauðsdal það var verið að smala og við fórum að hjálpa til (samt eiginlega bara Matti beibí) en það var rosa gaman og notalegt að komast aðeins í sveitakyrrðina það er allveg á hreinu að við þurfum að gera meira af þessu

Já og svo má náttlega ekki gleyma því að við hjónakornin áttum 2 ára brúðkaupsafmæli á sunnudaginn mér finnst það bara hafa verið í gær sem við giftum okkur dísös kræst hvað tíminn líður hratt

bless í bili kv Maja Pæja

 

 

 

 


Marteinn er á leiðinni á námskeið um helgina og svona er dagskráin ; )

NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA

Allir velkomnir, aðeins fyrir karla

Ath: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:


Fyrri dagur

Hvernig á að fylla ísmolamót?
Skref fyrir skref með glærusýningu

Klósettrúllur vaxa þær á klósettrúlluhaldaranum?
Hringborðsumræður

Munurinn á ruslafötum og gólfi
Æfingar með körfuefni -teikningar og módel-

Diskar og hnífapör: fer þetta sjálfkrafa í vaskinn eða uppþvottavélina?
Pallborðsumræður og nokkrir sérfræðingar

Að tapa getunni
Að missa fjarstýringuna til makans -Stuðningshópar-

Læra að finna hluti
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi -Opin umræða-

 

 

Seinni dagur

Tómar mjólkurfernur: eiga þær að vera í ísskápnum eða í ruslinu
Hópvinna og hlutverkaleikir

Heilsuvakt: það er ekki hættulegt heilsunni að gefa henni blóm
PowerPoint kynning

Sannir karlmenn spyrja til vegar þegar þeir villast
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar

Er erfðafræðilega ómögulegt að sitja þegandi meðan hún leggur bíl?
Ökuhermir

Að búa með fullorðnum: Grundvallarmunur á því að búa með mömmu þinni og maka
Fyrirlestur og hlutverkaleikir

Hvernig á að fara með eiginkonunni í búðir
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni

Að muna mikilvægar dagsetningar og að hringja þegar þér seinkar
Komdu með dagatalið þitt í tímann

Að læra að lifa með því að hafa alltaf rangt fyrir sér
Einstaklingsráðgjöf og samtöl

Eina sem þarf er að commenta og karlinn þinn er kominn á biðlista fyrir næsta námskeið

 

Stolið af annarri síðu Glottandi  ef þú átt karl þá held ég að það sé alveg málið að senda hann á þetta námskeið!!


ég hata þetta blogg

var búin að skrifa fullt en það datt út og ég nenni sko ekki að skrifa það allt aftur en annars þá er þessi blogg færsla mín tileinkuð henni Stínu fínu ;)

bless í bili

maja


halló !!!

Halló allir saman sem lesa bloggið mitt allavegan þessir 2 það er nú frekar lítið í fréttum þessa dagana nema bara leti og aftur leti ætlaði að vera rosa dugleg í sumarfríinuSvalur minu og þrífa allt og gera rosa fínt heima en ég bara nenni ekki að gera neitt ... er reyndar að byrja að vinna Gráðugurá föstudaginn (sem betur fer) svo það eins gott að fara að byrja á þessu Brosandisjáumt kv mæja pæja


jjeeessss.....

jaja þá er mín bara búin í skólanum og búin að fá einkunnirnar og allt náði öllu fékk meira að seigja 6 í dönskunni Brosandi var alvarlega farin að halda að ég myndi falla allveg ótrúleg að ég skuli alltaf ná dönskunni því að ég skil ekki stakt orð í þessu baunamáliég var sko eiginlega allveg hætt við að fá hvítu húfuna útaf þessari dönku en víst ég náði þessum áfanga þá er nú kannski allt í lagi að reina við þann næsta .

annars er nú bara lítið að frétta ég er eiginlega bara að bíða eftir að fara að vinna nenni enganvegin að hanga svona heima dag eftir dag þetta er dagur númer 4 og ég nenni varla að setja í þvottavélina hvað þa meira þetta væri nú í góðu lagi ef það væri bongó blíða og ég gæti bara verið úti í sólbaði Svalur en nei ! og ég sem var búin að panta sól og blíðu.Gráta

 bless í bili kv maja pæja


jaja þá er kominn tími til að byrja að blogga

nenni neblega ekki að læra undir dönsku próf sem ég er að fara í á "thorsdaginn" er að spá í að fara bara að taka til í geimslunni eða eithvað nenni allavegana ekki að lesa dönsku

hann Matti minn er í paris svo að ég og börnin erum alein heima þessa helgi pabbi og ásta eru í króatíu atli í london teingdó á akureyri þannig að við verðum bara að láta okkur leiðast alla helgina  annars er ég að fara að vinna á morgun svon að það styttir kannski aðeins helgina kv maja paja


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband